Samfélagsnet sem ekki er til sölu.
Heimastreymið þitt ætti að vera fullt af einhverju sem skiptir þig máli, ekki einhverju sem stórfyrirtæki telur að þú eigir að sjá. Þetta er grundvallarbreyting á samfélagsmiðlun, aftur í höndum fólksins.
Hafðu stjórn á þinni eigin tímalínu
Þú veist best hvað þú vilt sjá í heimastreyminu þínu. Engin reiknirit eða auglýsingar að þvælast fyrir. Fylgstu af einum aðgangi með hverjum sem er á milli Mastodon-netþjóna og fáðu færslurnar þeirra í tímaröð, þannig geturðu útbúið þitt eigið lítið horn á internetinu þar sem hlutirnir eru að þínu skapi.
Byggðu upp orðspor þitt og áheyrendafjölda
Mastodon gefur þér einstakt tækifæri til að eiga í samskiptum við áhorfendur þína milliliðalaust. Mastodon-netþjónn sem settur er upp á þínu eigin kerfi er ekki undir stjórn neins nema þín og gerir þér kleift að fylgjast með og eiga fylgjendur á hverjum þeim Mastodon-netþjóni sem er tengdur við internetið.
Óviðjafnanleg sköpunargleði
Mastodon styður færslur með hljóði, myndum og myndskeiðum, lýsingum fyrir aukið aðgengi, kannanir, aðvörunum vegna efnis, hreyanlegum auðkennismyndum, sérsniðnum lyndistáknum, utanskurði smámynda ásamt fleiru; til að hjálpa þér við að tjá þig á netinu. Hvort sem þú sért að gefa út listina þína, tónlist eða hlaðvarp, þá er Mastodon til staðar fyrir þig.

